Einstaklega
róleg helgi hér eitthvað. Það er unaðslegt að vakna við veðragný og þurfa ekki að fara á fætur eða fara út; velta sér bara á hina hliðina brosandi og lúra áfram. Sagnfræðineminn dvelur handan fjalla við rannsóknir og ég og sú gráa erum ein á bænum. Á svona degi er ekki nema eitt að gera: Leggjast í sófann og horfa á Das Boot. Fjögurra og hálfs klukkutíma útgáfuna. Og bíða eftir úrslitunum úr prófkjöri Samfylkingarinnar. Ég er ekki flokksbundinn þar frekar en annars staðar: Þess vegna varð ég reiður þegar einn frambjóðandinn fór að láta stuðningsmenn sína hringja í mig og senda mér SMS. Þetta fólk varðar ekkert um skoðun mína frekar en aðra og það að fara að andskotast í mér í síma er ekki besta leiðin til að hafa mig góðan. Þeir hafa ekki leyfi til þess frekar en sölumenn og betlarar.


Links to this post:
Create a Link
<< Home