miðvikudagur, október 25, 2006

Stuttur dagur

í vinnunni. Ég hlusta á nemendaverkefni í Listasögu, leysi eitt eða tvö smávandamál. Fæ nýja gamla Tati-mynd með póstinum - Trafic. Þarf að panta hana frá Þýskalandi, engilsaxneski menningarheimurinn er ekki spenntari fyrir honum en svo. Játningar Ágústínusar kirkjuföður á bókasafninu..skrýtin lesning, en sá sem ætlar að taka saman sögu áfengisins getur ekki litið fram hjá Gústa blauta. Horfi á Tati í kvöld, og það er byrjað að snjóa. Tími til að leggjast í rúmið með kirkjuföðurinn, köttinn og njóta ylsins og hlýjunnar inni.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home