laugardagur, október 21, 2006

Og....

þeim tókst að setja í einn hval. Og því er ekki að neita, að þessir hvalbátar eru flottir á skriðnum þegar keyrt er á fullum snúning. Það vantar ekki á þá skriðinn og þeir eru liprir í stýringu. Ég fyrir mína parta læt mér nægja munaðinn að þurfa ekki að keyra nema tíu mínútur til að geta farið og séð stjörnubjartan himin. Ég ætlaði að sjá norðurljós en þau hafa oft verið fallegri en í kvöld. Einhver spurði mig í dag hvort ekki væri fallegt á Þingvöllum núna..ég hef ekki athugað málið en það væri ekki úr vegi, það er alltaf fallegt þar, sér í lagi á haustin þegar ekki er nokkur ferðamaður á stjái. Kannski ég athugi það á morgun.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home