föstudagur, október 20, 2006

Og enn

er komin helgi. Sagnfræðineminn ætlar að dvelja vestan fjalla við hefðbundinn höfuðverk sem hans námi tilheyrir: Ritgerðarskrif. Ég ætla að elda mér kjarngóða kjötsúpu sem endist í þrjá daga. Svona alvöru afréttarsúpu, ekkert soð með káli hér, takk. Og svo bíð ég eftir fréttum af forngripasafninu fljótandi: Það er nógu skammarlegt að koma heim eftir veiðitúr með öngulinn í rassinum, en með hvalskutul...það er áreiðanlega vont. Sér í lagi ef það eru þessir nýju norsku með öflugu sprengihleðslunni. Svo ætla ég á námskeið í leikhúsinu, þó ég verði ekki með í aðalverkefninu í vetur.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home