Hér
er ekkert um að vera. Sagnfræðineminn kom og fór, þvoði þvottinn sinn og svaf. Kötturinn lét eins og hún hefði hann heimtan úr helju og vildi hvergi vera nema hjá honum mest alla helgina. Ég er ekki vitund afbrýðisamur, þetta er hans köttur. Fréttir í Ekstrabladet um glæframál Íslendinga? Minnir mig á Færeyinginn sem ég hitti í haust og sagði við mig: "Íslendingar voru sendir í Bláturn i gamla daga?" "Já, þeir sem gerðu eitthvað af sér" svaraði ég. "Já, og nú eigið þið hann. Magasin stendur á lóðinni" sagði hann og glotti. Velbekomme, eða þannig. Ekki að ég gráti yfir því. Mér leikur mest hugur á að vita hver það var sem dó í sundlauginni hérna á fimmtudaginn, en ég fæ að vita það þegar ég mæti í vinnuna. Á þriðjudaginn.


Links to this post:
Create a Link
<< Home