fimmtudagur, október 26, 2006

Ég

er Erlingur góðikall í dag. Nemendur skila frábærum og vel unnum verkefnum sem ég gef vitanlega rausnarlega fyrir. Og svo er komin löng helgi, vetrarfrí sem stendur fram á þriðjudagsmorgun...ég byrja vitanlega á því að skipta á rúminu. Snjókoman frá því í gær hefur vitanlega snúist upp í þetta hefðbundna bleytuslabb sem bílar og fólk sulla í gegn um, en samt er þetta eins konar jólaveður hér á Suðurlandi. Þar er jóla, það er jóla, það er jólableytuslabb -Og oj bara....það eru komnar einhverjar jólabrúntertur í Nóatún. Geta þessir andskotar ekki beðið, ekki einu sinnni fram yfir fyrsta vetrardag? Ég fúlsa við því að kaupa þetta því það fyrsta sem mér dettur í hug er að þetta hafi verið geymt í frysti frá síðustu jólum einhvers staðar. Fer frekar heim að kúra með kettinum og kirkjuföðurnum - Drottinn gef mér skírlífi en ekki alveg strax Ágústínusi og játningum hans. Þykist vera í kofa einhvers staðar í afdölum og hlusta á veðurhljóð.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home