Ég

eyði deginum með sjálfum mér. Með morgninum fer ég til Þingvalla með myndavélina en sé ekkert sem ekki er búið að taka 100 sinnum áður. Á bakaleiðinni gríp ég upp puntstrá í blæstri móti sól. Ákveð svo að skreppa í Dælarétt og reyna við það myndefni, en því fylgir sérstakt vandamál: Birtan þar er alltaf öðruvísi en á Selfossi og þegar ég kem þangað dregur ský fyrir sól - og það slítur niður snjókorn! Það er lítið annað að gera en að fara heim og þrífa sameignina, leggja sig og fá sér svo að borða, gega kettinum pilluna - og lesa Grágás. Stafrétta útgáfu. Ái.


Links to this post:
Create a Link
<< Home