Fjúff
eða þannig. Það er allt í einu nóg að gera. Ég var allt í einu minntur á að ég er kominn á deadline með að ganga frá fyrirlestrinum sem ég var með á söguþinginu í vor og koma honum í prentun. Mér var nær að tala blaðalaust og nota Power-point. En það er allt í lagi, ég ber saman eitthvað upp í kvótann...2-3000 orð drepur engan. Gerði þetta mest allt í töflugati í morgun. Leikhúsið klárast á sunnudaginn: Ég var beðinn um að taka atburðinn upp á myndband og skrifa út á DVD. Í næstu viku vill einhver fá mig til að vera aukaleikari í einhverri kvikmynd. Hef ekki hugmynd um hvaða kvikmynd eða um hvað en þetta er kannski gaman. Á fimmtudaginn fyrirlestur uppi á Laugarvatni um frænda minn Ólaf Ketilsson. Þar getur afkomandi Eyjólfs í Vælugerði ekki látið sig vanta. Svo vill einhver annar frændi minn fá mig til að aðstoða sig við textagerð fyrir heimildarmynd sem hann er að gera um Veiðivötn. Karlinn í Feðgabyggð bara eftirsóttur....


Links to this post:
Create a Link
<< Home