Þessa
helgina hefur Feðgabyggðarkarlinn verið einn að veltast með kettinum. Verið latur, ekki sökum þreytu heldur bara sökum leti, og maður á að rækta leti sína líka. Gefa henni svigrúm og láta dugnaðinn víkja um stund. Húsverk hafa verið gerð þegar þau nenntu að láta sig gerast. Samt hefur umhverfi mitt batnað aðeins, og ég hef ekki vanrækt umgengni um heimilið. Andri hefur verið vestan heiða. Fór í dag að Meðalholtum að hitta gamla Flóamenn og sjá þá stinga sniddu. Það var gaman. Langaði að fara og taka myndir en þetta haust er ekki litahaust: Náttúran er ennþá bara græn og gul. Og sá blandaðan kór útivistarfélags vinstri manna syngja suður í Keflavík í sjónvarpinu. Lífið er bara ágætt. Fór á laugardagskvöldið í norðurljósaferð niður að Timburhólum og horfði á þau breiða sig eins og slæðu yfir himininn. Og las mér til um alkógólisma í Rússlandi fyrir daga byltingar.


Links to this post:
Create a Link
<< Home