mánudagur, október 16, 2006

Það er búið að

standa til lengi. Ég hef horft á þetta í marga mánuði og hugsað að ég þurfi að fara að gera þetta. Og í dag var komið að því. Ég tók á mig rögg. Ég tók sokkaskúffuna í gegn. Það tók tvær mínútur. Svo sendi ég þennan fyrirlestur frá mér. Og tók til á ýmsum stöðum í íbúðinni. Það er bara að verða notalegt hérna og kaldi blásturinn úti réttlætir alveg að fara snemma í rúmið með bók og kettinum. Veturinn er kominn, rjúpnaskytturnar farnar í feluleik uppi á fjöllum og lífið er eins og það á að vera. Og þessa dagana er mest gaman að heyra fréttir af skammvinnum ferli sænskra ráðherra...það verður ekki auðvelt fyrir nýju ríkisstjórnina þar. Við förum bráðum að geta flutt út hugvit Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi og lánað þeim nokkra, við erum ýmsu vanir hér...
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home