Eitthvað
að frétta? Njah. Feðgabyggðarkarlinn ræktar leti sína. Það er svosem nóg að hugsa, velta fyrir sér og spá. Læðan Lafði Hermína hefur fundið söngröddina og syngur nú eins og hún sé bakrödd hjá Leonard Cohen. Sagnfræðineminn kom og fór, honum gengur einbýlingshátturinn svo vel að hann hefur misst fjögur kíló síðan hann flutti í bæinn, og ég ekki nema eitt. Það er hreyfing á sölumálum íbúðarinnar minnar - l0ksins - og nágrannakonan bakkaði á bílinn minn og dældaði hurðina. Svo það verður sjálfsagt í nógu að snúast á næstunni - hugarflug Leikfélagsins er um næstu helgi en ég er ekki að leika núna heldur að þýða, semja og "leikstýra."


Links to this post:
Create a Link
<< Home