Þá
er hann kominn á norðan, kuldanæðingur treður sér gegnum fötin og það var skafrenningur á Holtavörðuheiði í morgun, Klettsháls lokaður. Stjórnmálamenn jagast og fjölmiðlarnir eru komnir í sitt gamla heygarðshorn með ónotum út í unglinga. Og trúið mér, þessi ofurneikvæði nasismi gangvart unglingum grefur um sig í samfélaginu. Ég ætlaði varla að trúa eigin eyrum í morgun þegar ég var að vakna - og kannski var mig að dreyma - þar sem afar ákveðin kona talaði með festu um það hvernig ætti að tala við unglinga, en það er mál sem var eiginlega ekki á færi nema sérfræðinga, og talaði líka um að halda námskeið fyrir foreldra í þessu nýja fagi. Hm. Var ekki þörf á að tala við þetta fólk fyrr? Þarf orðið sérfræðinga til að halda uppi mannlegum samskiptum? Ég þori varla að opna munninn lengur í vinnunni, ég hef sumsé aldrei farið á svona námskeið. En það er engin von til þess að unglingaofsóknunum linni þetta árið: Það er kosningavetur, og það er öruggur atkvæðaveiðari að akneytast út í unglinga, fara svo í skólana og lofa fleiri íþróttamannvirkjum (sem öllum er svo bannaður aðgangur að nema atvinnumönnum)- og svo má senda blessuðu unga fólkinu mynd af sér með áritun og fyrirsögninni kæri ungi kjósandi, svona lít ég út ef þú þarft að kasta í mig eggjum. En af því ég er svona gamaldags og stend með unglingunum þá þýðir það að ég er í fyrsta lagi ábyrgðarlaus, í öðru lagi vanþroska og í þriðja lagi óvinur ríkisins, svo n+u verður síminn minn örugglega hleraður.


Links to this post:
Create a Link
<< Home