Allt í allt
góður mánudagur. Fór eftir hádegi út í apótek að sækja mér nýjan lyfjaskammt þó að ekki væri búið að endurnýja lyfjakortið mitt sem rann út um síðustu mánaðamót. Starfsfólkið kippti því í lag með símtali. Ég fékk að vísu tilboð í ruslpósti í morgun þar sem var verið að bjóða mér Viagra professional (?) en lyfjakortið mitt dekkar það ekki. Ekki í þessu starfi sem ég er í. Mér var sent nýtt kreditkort í póstinum og svo fór ég í bankann og fékk greiðsluáætlunina mína lækkaða um nokkur þúsund á mánuði. Það er svona að vera búinn með námslánin. Það eina sem mig vantar núna er ljóskulegur kvenmaður á góðum aldri. Ekki fyrir mig, heldur til að taka þátt í stuttleikriti sem verður sýnt þann fimmtánda. Lafði Hermína er í vinalegasta ham og segir mér sögu þegar ég kem heim úr þessum erindum áður en ég legg mig.


Links to this post:
Create a Link
<< Home