Ahh
Það er bara prýðilegt í þessu veðri með rigningu og öðru að koma heim úr vinnunni, fá sér kríu, elda góðan kvöldmat, taka til í stofunni og klára þessa grein fyrir söguþingsritið. Alveg fullkomin notalegheit. Þangað til maður nokkur hringdi og bað mig um leyfi til að fara í klippingu. Nei, þetta var bara hann Elli, félagi minn úr leikfélaginu, hann þarf að leika lögfræðing eitt augnablik á sunnudaginn. Ég sagði honum auðvitað að það væri allt í lagi mín vegna - nema hvað, maður getur nú verið líberal.


Links to this post:
Create a Link
<< Home