miðvikudagur, september 27, 2006

Svo

hvernig á nú að verja Ísland? Með hreyfanlegum vörnum, er sagt. Undirrituðum dettur helst í hug landsliðið í handbolta að hreyfa sig í vörninni. En þetta er í fyrsta sinn sem Ísland stendur eitt og sér án þess að erlent ríki sé að halda í höndina á okkur: Danir gerðu það til 1944, beint og óbeint. Svo tóku Bandaríkjamenn við. En nú erum við óstudd. Engar hækjur og eftir að sjá hvort landið ræður við að haga sér eins og fullveðja ríki. En vera kann að um þetta gildi gamli málshátturinn að tvoisvar verður sé feginn sem á steininn sest. Því með þessu hverfur líka gamall ásteytingarsteinn úr innanlandspólitíkinni sem hefur skip meginmáli þó menn hafi haldi öðru fram. Á sama hátt og afstaðan til Dana mótaði stjórnmálin fyrr á tíð. Vera kann að atkvæðatölur stjórnmálaflokka fari að taka breytingum og fylgi líka.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home