Svo
kom rólegur dagur. Að vísu var afmæli skólans í dag en ég átti ekki nema tvo tíma í dag og viðtalstímann svo ég fór rólega frá því uppistandi og smeigði mér líka hjá því að fara í fíflagulan bol í tilefni dagsins. Hins vegar tókst uppákoman vel, enda kom ég þar hvergi nærri. Lagðist upp í rúm og las skáldsögu þegar ég kom heim, slakur undir sæng. Lafðinni líkaði sú heimkoma vel og kom reglulega inn til að mala með mér. Eftir kvöldmat fundur í leikfélaginu - ég ætla ekki að leika í vetur en tek þátt í stuttleikritasýningu þar sem ég breytti einni smásögu í leikrit og þýddi annað. "Leikstýri" öðru verkinu..sem þýðir að ég sit og hlusta á fólkið æfa sig og stýri kannski ljósunum. Ef ég verð búinn að læra á þau, sem varla getur verið mjög erfitt. Ekki fyrir mann sem getur lært á flóknar myndavélar og orðið brúkfær á tölvu.


Links to this post:
Create a Link
<< Home