þriðjudagur, september 12, 2006

Og í dag

hef ég talað við lækninn minn. Borgaði 4330 krónur fyrir að láta mæla í mér blóðþrýstinginn þrisvar..143/80...og að láta einhvern kvenmann stinga á mig gat til að ná sér í blóð. Og til þess að gera þetta þurfti ég að keyra Selfoss-Reykjavík-Selfoss. Svo mátti ég pissa í glas. Það hefði verið hægt að gera þetta allt hér á Selfossi og senda niðurstöðurnar suður. Aftur austur, að lesa mér til um sögu bjórsins í Evrópu og er búinn að fara frá Mesópótamíu til Englands á fjögur þúsund árum án þess að leggja út fyrir akstri - með viðkomu í Skýþíu. Undarlegir gaurar, þessir Skýþar, drukku gerjaða kaplamjólk og gerðu sér tjöld, kyntu bál inni í þeim og brenndu hassplöntum, sátu svo inni í tjöldunum og góluðu. Söfnuðu síðu hári og fléttuðu niður á bak. Hljómar eins og Hard Rock Halleluja. Þetta var lögregluliðið í Aþenu forðum. Veit orðið margt um korntegundir, einkorna, fjölkorna, bygg, hveiti og hafra. Og hvernig á að brugga bjór á tíu menningarsvæðum. Sagnfræðin teymir menn á undarlegustu staði. Skrifaði DVD diska, búinn með níu stykki. Tekur þrjú kortér hvern.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home