Nei

ég fer ekki í réttir. Það er sagt að það sé mjög gaman en ég á ekki gott með að koma auga á skemmtunina. Réttir eru oftast rigningarblautar rollur, skítugar upp úr troðnum almenningi, svöng og jarmandi lömb og drukknir bændur. Ef þið hafið séð drukkinn bónda veltast um í almenningi innan um féð að reyna að ná í hornin á einhverju lambi og hornbrjóta það skilja hvað ég á við. Ef fólk vill kannast við að hafa séð þetta. Og þetta á að vera skemmtilegt og jafnvel töff. Bóndinn stundum svo fullur að jafnvel hundurinn hans skammast sín fyrir hann og neitar að koma með honum heim. Þetta á að vera litríkur og skemmtilegur gleðidagur svo að ferðaþónustur eru jafnvel farnar að selja hópferðir erlendis handa fólki að koma og sjá Íslendinga í sínum ömurlegasta ham. Skemmtilegustu réttir sem ég fer í núorðið er gamla Dælarétt, að hruni komin og ekki sést þar kind í meira en fjörutíu ár. Og eina réttin sem ég hef gaman af að fara í.


Links to this post:
Create a Link
<< Home