sunnudagur, september 17, 2006

Meira um gamla karla með fyndnar húfur.

Páfinn móðgaði múslimi. Svo hvað. Það er auðveldasti hlutur í heimi að espa þá. Það þarf bara að opna munninn. Eða hía á húfurnar þeirra. Þetta er að verða eins og einelti hjá skólastrákum. Og það er enginn trúarleiðtogi maður með mönnum nema hann geti gert grín að þeim sem eru með öðruvísi skrýtna húfu en hann. Páfinn segir Íslam boða mannvonsku - og eins og vænta mátti rísa þeir allir upp, mannvinirnir, og hrópa "drepa, drepa, brenna, brenna." Nema hvað. Þeir sýna þá öllum að Bensi hafði rétt fyrir sér. Ég er ekki að segja að páfinn sé skárri: Hann stendur fyrir hatur gagnvart samkynhneigðum, kúgun innnan veggja heimilanna á konum og börnum, boð og bönn út í bláinn rétt eins og hinir. Svo ekki sé talað um kynferðislega misnotkun á drengjum, sem kirkjan breiðir haganlega yfir og bíar ofan á. En Sr. Bensi er refur. Og núna er hann aðal bolinn á leikvellinum. Hann þurfti að sýna það einhvern veginn. Svo kemur hann fram aftur glottandi og segir - "Her ég? Nei það ver ekki ég sem sagði þetta, heldur einhver annar sem þýðir ekkert að ætla að drepa því hann er dauður...hehehe."Og þessir karlar keppa í húfusýningunni eins og dragdrottningar á Gay pride sjálfir meðan þeir fordæma alla sem ekki samþykkja höfuðfatið þeirra, af því að sú húfa merkir auðvitað hin eina rétta. Þvílík endileysa, allt saman. Og meðan mannvinirnir karpa leiðist mannkyninu öllu og líður illa. Eins og segir í Konungs-Skuggsjá: Verða þá illdeilur og ýfingar með mönnum, svo að Guði leiðist. Eða eitthvað í þessa veru. Betur færi að þessir karlar færu að spyrja guðina sína hversu gaman þeir hafi af karpinu.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home