föstudagur, september 22, 2006

Hvenær

verður Kalda stríðið búið á Íslandi? Við erum að verða manna síðastir að gera það mál upp, ef marka má fjölmiðla og umfjöllun í þeim. Fréttir um símahleranir og vopnaða vinstri menn og kommúnista hefðu átt að vera fyrir löngu komnar fram. Og af hverju bara vinstri menn? Það vita flestir að Varnarlið Verkalýsðins var til og átti að koma í veg fyrir að hægri menn hleyptu upp fundum verkamanna. En mennirnir á þessari mynd? Er þetta kylfutrúðadeild íþróttafélagsins Ármanns komnir til að skemmta fólki þann 30. mars 1949? Eða stendur til að berja einhvern?
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home