Ég
er ekki alveg viss um hvað er að fara fram í veröldinni, nema það að alls staðar er í gangi mikil reiði - hvort sem það er reiði trúarhópa og vaxandi fasismi hinna eldri eða reiðiviðbrögð hinna yngri. Svo tveir strákar slógust. Svo hvað. Ég man þá tíð að sjá slagsmál á böllum. Aulalegustu slagsmál sem ég hef vitað var þegar tveir vinstri menn slógust á balli af því þeir voru ekki sammála um skilgreiningu á því hvað alþýða væri. Og þetta gerðist á árshátíð Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Og það getur ekki settlegra íhald en íhaldið í Eyjum. Stokkseyringar æfðu sig fyrir böllin í miðri viku með því að berja hausnum utan í frystihúsið. Komu svo og rústuðu öllum ungmennafélagssamkomum með slagsmálum og barsmíðum. Í minni sveit var þetta leyst með því að láta þá berjast í hreppsréttinni, sem var- og er- rétt hjá samkomuhúsinu. Og þar var líka djúpur manngerður pollur sem einu sinni hafði átt að vera sundlaug og kom stundum að ágætum notum. En þegar þetta gerist í hinum gróna, ráðsetta og borgaralega vesturbæ Reykjavíkur - já svona gerir maður ekki, krakkar. Engum hefði brugðið ef þessi slagur hefði orðið í Grafarvoginum eða Breiðholtinu- nú eða uppi í Mosfellsbæ. En konan úr félagsmiðstöðinni sem talað var við í Kastljósi kvöldsins fær fimm stjörnur hjá mér - var hvorki hysterísk eða veinandi, yfirveguð og vönduð í sínum málflutningi. Annað en sums staðar heyrist, að öll ungmenni séu óbermi sem þurfi að loka inni og berja niður.


Links to this post:
Create a Link
<< Home