laugardagur, september 23, 2006

Ég er

latur í dag. Hef bara lokið af húsverkum en annars mest bælt rúmið mitt og lesið. Um sænskar löggur sem eru að drepast úr þunglyndi og sofa aldrei í rúminu sínu. Og svo um Sr. Jón Steingrímsson, forföður minn, sem varla kemur heim í fyrri hluta bókar sinnar nema til að búa til nýjan krakka og fer svo aftur. Séra Jón var mér haldgóður meðan ég bjó á Sauðárkróki: Þegar menn heyrðu að ég væri afkomandi hans var ég samstundis talinn með Skagfirðingum. Mér til halds og trausts er daman í gráa kattarskinnspelsinum sem leggst hjá mér, malar, eða tekur sig til og segir mér sögu. (Allavega held ég að hljóðin sem koma frá henni sé einhvers konar saga.) Andri fer upp á Skeið að bjarga þeirri sveit frá óvættum. Frelsisherinn hefur komið sér fyrir þar í stofunni hjá ömmu eins þeirra. Margt mega ömmur þola.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home