Þá
eru þeir farnir. Ekki hefði mig grunað fyrir nokkrum árum að ég mundi lifa þann dag. Einn af tilverunnar föstu punktum er horfinn og hálfgerð óvissa komin í staðinn. Hún var svo fjallgrimm, þessi vissa um öryggið, þegar þeir hnituðu hringa og teiknuðu hvíta geira í háloftin yfir Flóanum í gamla daga þegar veðrið var gott til að verja landið. Og nú óskar Feðgabyggð öllum til hamingju með daginn, bæði þeim sem vildu þá burt og líka þeim sem nú sitja með sárt ennið, því aldrei er að vita nema báðir græði þegar upp er staðið.


Links to this post:
Create a Link
<< Home