Það
er margt að brjótast í mínu höfði þessa dagana. Það sem efst liggur er þessi nýja herferð gegn unglingum sem nú er að fara í gang og er núnanokkrum vikum á eftir áætlun. "Unglingar" eru teknir og þeim er öllum slengt undir einn hatt. Ó, það er svo fullorðinslegt að tala niður til þeirra og dæma þau sem einn hóp sem nauðsynlegt er að hafa eftirlit með. Umræða sem er gróðrarstía fyrir fasista og fólk með fyndin höfuðföt, sem blómstrar þegar þetta fer í gang. Og eins og vant er eru unglingarnir skynsamastir, þegja þunnu hljóði við og halda því áfram sem þau eru að gera. Þjóðfélaginu stendur svo sem ekki mikil ógn af..það er ekki til íhaldsssamara lið en hópurinn sem einu sinni kenndi sig við ´68. Og það er svo auðvelt að sanna sig sem ábyrgan uppalanda og þjóðfélagsþegn með því að berja unglingana niður. Þá er maður góður. Sá sem talar máli þeirra er úthrópaður sem óábyrgur lúsablesi. (Það er ég, meðal annars.) En það er til ágæt regla sem á vel við um umgengni við ungmenni: Ef komið er fram við þau sem börn - eða bófa - munu þau haga sér sem slík. Ef komið er fram við þau eins og fólk, haga þau sér eins og fólk. Og það eina sem þarf er að vera skynsamur eisntaklingur -- þá koma "þau" líka skynsamlega fram. Við köllum ólætin fram sjálf með okkar eigin viðbrögðum. Og stundum verð ég var við það í því umhverfi þar semég starfa að fólk telur skólann geta gengið mun legnra en landslög leyfa í því að stjórna unglingum - ég hef jafnvel heyrt utan að mér að skólinn eigi ekki að virða landslög um sjálfræði og hirða ekkert um þó nemandi sé sjálfráða 18 ára að aldri...því fólk sé sko áfram börn þó lögin segi annað.


Links to this post:
Create a Link
<< Home