Þó að
ég sé orðinn einn með kettinum, allavega virka daga, færir lífið mér nóg verkefni og ég er alls ekki kominn á þetta löngu-rólegu-kvölda stig sem ég var að stíla upp á. Sagnfræðineminn kom austur á föstudag: Fór aftur í bæinn á laugardagskvöld og kom aftur um nóttina, fór svo á sunnudagskvöld. Frelsisher Flóa og Skeiða hélt uppi aðgerðum. En nei....þó þeir stundi allir tölvuleiki eru þeir ekki að leíta að hommum til að drepa. Svoleiðis er bara fyrir amatöra: Þeir leggja sig meira eftir raunverulegum skrýmslum og vampírum. Enda hefur verið afar lítið um hvort tveggja í Flóa og á Skeiðum síðustu fimm árin og líklega eru þeir bara í útrás. Ég er búinn að nota þrjú kvöld í að ganga frá videoupptöku á Kambsráninu frá í fyrra og búa til master DVD disk til að kópera handa fólkinu sem var í sýningunni. Upptakan er ekki góð en eins góð og hægt er að ætlast til á amatöramyndavél sem er bara stillt upp og látin malla. En hvaða myndavél sem er þarf líka að ráða við ansi breitt svið í lýsingu í þessari sýningu. Hljóðið er allavega gott. Sem er ekki vaninn í íslenskum kvikmyndum, svo ég get kannski gefið mér prik fyrir það. Og svo þarf að fara í klippingu, snyrta skeggið, skera af tánöglum....verkefni, verkefni, verkefni. Og séu ekki þessi verkefni er ég að stúdera kvenfólk og brennivín. Í sögulegu ljósi..og kominn á minn aldur er líka hægara að einbeita sér að bóklega þættinum í þessu viðfangsefni. Sem játast skal að hefur mörgum maninum orðið örlagavaldur og jafnvel ekki enst ævin til að vinna úr efninu, svo ég tel mig þegar upp er staðið lánsaman.


Links to this post:
Create a Link
<< Home